Framtíðarsýn
Í skólum Akureyrarbæjar öðlast börn hæfni til að taka farsælar ákvarðanir um eigið líf. Þau fá tækifæri, stuðning og hvatningu til að styrkjast í námi, samskiptum og þátttöku í samfélaginu. Lögð er áhersla á að mæta áhuga og þörfum barna og virða raddir þeirra. Leikur, nám og kennsla miðar að því að börn séu vel undirbúin fyrir áframhaldandi nám og virkri samfélagsþátttöku – og um það ríkir einhugur.
Meginmarkmið menntastefnu Akureyrarbæjar eru eftirfarandi:
- Leiðsagnarnám sé ríkjandi á öllum skólastigum og námsmat markvisst og áreiðanlegt.
- Gæði og framsæknir starfshættir einkenni skólastarf, stutt af traustri, faglegri og styðjandi forystu í virku lærdómssamfélagi alls starfsfólks.
- Öflugt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf sé ómissandi hluti menntunar.
- Fjölskyldur og skólasamfélagið vinni saman að farsæld barna.
- Stafræn tækni og miðlar séu nýtt á markvissan og öruggan hátt í námi og kennslu.
- Þverfagleg sérfræðiþjónusta styðji fagfólk i skólum við að mæta fjölbreyttum þörfum barna.
- Stöðumat og grunnur að nýrri menntastefnu
Svo fylgja megi eftir framgangi og innleiðingu menntastefnunnar var safnað gögnum um stöðu skólastarfs í Akureyrarbæ við upphaf endurskoðunar. Þar var m.a. stuðst við niðurstöður Skólapúlsins, Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, innlit í skóla, Lesferil MMS, starfsmannakannanir, SVÓT-greiningar og önnur fyrirliggjandi gögn. Einnig var horft til starfsáætlana og starfsþróunaráætlana skóla, innra og ytra mats, ársskýrslna og úttekta á skólastarfi. Þessi staða markar upphafspunkt nýrrar menntastefnu.
Við mótun menntastefnu Akureyrarbæjar var leitað samráðs við nemendur, starfsfólk skóla, foreldra, bæjarfulltrúa, íbúa sveitarfélagsins og sérfræðinga. Aðilarnir voru beðnir að greina styrkleika og tækifæri við upphaf endurskoðunar.
Í samráðsferlinu kom skýrt fram mikilvægi þess að tryggja vellíðan, öryggi og farsæld barna, efla fagmennsku og mannauð, styrkja gæði kennslu og áætlanagerðar og móta skýra stefnu um nýja tækni. Einnig var lögð áhersla á sterka faglega forystu og leiðsögn, skýran ramma um framkvæmd og samræmingu starfshátta, auk öflugrar sérfræðiþjónustu.
Stöðumat og grunnur að nýrri menntastefnu